Frelsi til að velja – ráðstefna á netinu

Ás styrktarfélag tekur þátt í Nord+ verkefninu Frelsi til að velja eða Freedom of my choice eins og áður hefur verið sagt frá. Samkvæmt áætlun verkefnisins skiptast þátttakendur á að halda fundi í sínu heimalandi. Við hér á Íslandi skipulögðum heilmikla dagskrá dagana 20. – 23. apríl og mikil tilhlökkun ríkti í hópnum að taka … Read more

Viðbrögð við hertum sóttvarnaraðgerðum hjá Ási styrktarfélagi

Nú er ljóst að við stöndum í sömu sporum og í vor þegar faraldurinn var í hámarki. Fjöldi smita gefur til kynna að það er töluvert samfélagssmit. Í gær voru boðaðar hertar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu og verðum við að taka þær með í reikninginn í allri okkar þjónustu. Þetta þýðir að við tökum upp heimsóknabann … Read more

Aðgerðir vegna Covid-19

Í ljósi boðaðra aðgerða vegna Covid frá og með morgundeginu (mánudegi, 05.október) vill Ás styrktarfélag koma eftirfarandi atriðum á framfæri Vegna vinnu og virkni:  Við viljum leitast við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að við getum haldið þjónustu eins og hægt er. Við förum við til baka í skipulag sem er … Read more

Sóttvarnarráðstafanir vegna Covid19

Seinustu þrjár vikur hefur starfsemi félagsins hlýtt gildandi takmörkunum Almannavarna sem lesa má með því að ýta hér. Við gerum ráð fyrir að svipað fyrirkomulag verði áfram þar sem enn er töluverður fjöldi fólks að smitast af Covid samkvæmt fréttum. Með því að ýta hér má skoða gagnlega upplýsingasíðu sem Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins hefur tekið saman vegna Covid. Starfsstaðir … Read more

Breytingar á verkefnum stjórnenda í Vinnu og virkni

Á síðustu vikum hafa orðið nokkrar breytingar á verkefnum stjórnenda í Vinnu og virkni. Heba Bogadóttir þroskaþjálfi tók við starfi forstöðumanns í Stjörnugróf í ágúst. Heba hóf störf hjá félaginu 1990. Hún starfaði lengst af á Lyngási, var forstöðumaður í búsetu á Háteigsvegi og yfirþroskaþjálfi í Stjörnugróf frá 2013. Herdís Halla Ingimundardóttir tók við stöðu yfirþroskaþjálfa í … Read more

Helga Matthildur Viðarsdóttir listamaður List án landamæra 2020

Í dag var tilkynnt hver væri næsti listamaður listahátíðarinnar List án landamæra 2020. Í ár er það Helga Matthildur Viðarsdóttir, starfsmaður Áss og óskum við henni hjartanlega til hamingju með þann heiður. Fyrsta einkasýning á verkum Helgu Matthildar verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 23. október 2020 og verður opin til 13. nóvember 2020. Hér … Read more

Haustmarkaðurinn heppnaðist vel

Starfsmenn gróðurhússins sendir sínar bestu kveðjur og þakka fyrir góðar viðtökur á breyttum haustmarkaði. Allir virtu 2 metra regluna og margir létu sjá sig. Það verður spennandi að sjá hvað verður á næsa ári en þá verður vonandi meiri markaðsstemning og fleiri vörur seldar. Við minnum á að með því að versla vörur úr gróðurhúsi … Read more

Haustmarkaður gróðurhússins í Ási vinnustofu

Við þökkum frábær viðbrögð við fyrri haustmarkaðinum okkar við gróðurhúsið í Stjörnugróf í síðustu viku. Pokarnir seldust upp, geri aðrir betur. Við erum að undirbúa seinni markaðinn. Bjóðum starfsmenn og aðstandendur í Ási vinnustofu velkomin við innganginn í Ögurhvarfi milli 13.00 og 15.00 fimmtudaginn 03.september og minnum alla á gæta vel að sóttvörnum og fjarlægðarviðmiðum.

Haustmarkaður Áss styrktarfélags

Nú þegar styttist í að haustlitirnir verði hluti af umhverfi okkar þá höfum við tekið ákvörðun um hinn árlega haustmarkað. Hann verður ekki með hefðbundnu sniði þetta árið. Í stað þess að bjóða alla velkomna í gróðurhúsið munum við taka til úrval lífræns ræktaðs grænmetis og matjurta í poka. Í pokanum verða eftirtaldar tegundir; tómatar, … Read more

×
Dekkjaleitarvél
Felguleitarvél

Dekkjaleitarvél

Felguleitarvél